layout: default title: Skrímslaskrá parent: vardarbok grand_parent: Önnur útgáfa
Skrímslaskrá
Flokkar skrímsla
d20 | Hópur | Skrímsli |
1 | Fuglar | Fönix, rok, vívern |
2 | Dýr | Blóðhjörtur, grábjörn, drápsbýflugur, næturköttur, höggormur, úlfur |
3 | Risaeðlur | Grænn dreki, purpura ormur |
4 | Smíðaverur | Beinasmíði, steinhundar, ufsagrýla |
5 | Púkar | Helhundur, martröð |
6 | Úr annarri vídd | Einglyrningur, hugfláir |
7 | Huldufólk | Boggi, dís, frostaálfur, smáfólk, rauðhöttur, næturnorn, hafnorn, viljahvísla |
8 | Risar | Ettin, himnarisi, stormrisi, títan |
9 | Drýslaættar | Bölbirni, drýsill, stórdrýsill, þurs, rótardrýsill, tröll, skógartröll |
10 | Mannfólk | Meðhjálpari, ræningi, gnolli, hettuklæddir menn, trítón |
11 | Blendingsverur | Kentár, sporðljón, mínótár, uglubjörn |
12 | Andaverur | Ósýnilegur eltihrellir, skuggi |
13 | Skordýr | Aranea, greftrunarhryllingur, hellaspretta, risasporðdreki |
14 | Eðlur | Steinkemba, hýdra, kóboldi, mannnaðra, skriðdýr |
15 | Galdra | Blikkhundur, hverfiköttur, vatnsvættur |
16 | Goðsagnaverur | Öskurvofa, griffill, refsinorn, hýdra, lamía, einhyrningur |
17 | Plöntur | Skríðandi vínviður, rótarnorn, ruðningshaugur, entur |
18 | Hamskiptar | Svínvera, varúlfur |
19 | Uppvakningar | Grafverndari, draugur, náæta, návaldur, múmía, beinagrind, vampíra, myrkvi, uppvakningur |
20 | Óvenjuleg | Hlaupkennt slím, hermir, ryðskrímsli, STYíðsnigill |
Meðhjálpari
4 HP, 1 brynja, 8 STY, 11 FIM, 14 VIL, helgiblótshnífur (d6)
- Helgir þjónar guða, ferðast oft í hópum fjögurra eða fleiri.
- Bera helgi tákn (Vernd einu sinni á dag).
Aranea
6 HP, 13 STY, 12 FIM, 15 VIL, bit (d8)
- Risavaxnar kóngulær með grænsvartan húðlit og stóra heila. Geta tekið á sig mannlegt form að vild.
- Stunda galdra í myrkum hellum fullum af vefjum. Hafa heillun og skipun galdrabækur.
- Eldskaði gegn Aranea er elfdur.
Ræningi
4 HP, 1 brynja, 12 STY, 12 FIM, 9 VIL, stuttsverð (d6) eða stuttbogi (d6)
- Útlagar sem ráðast á byggðir, skip og ferðamenn. Hópur fjögurra eða fleiri er hersveit.
- Hersveitin hefur alltaf einn leiðtoga í hringbrynju eða álíka (2 brynja) með langsverð (d10) eða lásboga (d8).
- Hollusta: Nota VIL leiðtogans (13) þegar kastað er upp á móral. Ef leiðtoginn fellur flýr sveitin.
Öskurvofa
8 HP, 6 STY, 12 FIM, 15 VIL, draugleg snerting (d8)
- Andar án líkama sem dvelja áfram eftir dauðann til að ásækja hina lifandi.
- Kuldi, hiti eða náttúruöfl hafa engin áhrif á hana. Vopn úr járni valda elfdum skaða.
- Öskur: Allir sem heyra það þurfa að standast VIL varnarkast eða falla í dá.
Steinkemba
10 HP, 1 brynja, 12 STY, 13 FIM, 13 VIL, bit (d10)
- Langar, slöngulaga eðlur sem hreiðra um sig í djúpum hellum eða kjarri.
- Að berjast við steinkembu án þess að mæta augnaráði hennar er erfitt (árásir andspænis henni eru skertar).
- Augnaráð: Hver sá sem horfir í augu hennar verður smám saman steinrunnið og algerlega frosið eftir þrjár umferðir. Móteitur er hægt að útbúa úr iðrum steinkembunnar. Spegilmynd steinkembunnar er skaðlaus.
Blikkhundur
5 HP, 11 STY, 14 FIM, 5 VIL, bit (d6)
- Hundar sem geta fjarflyst og þjóna öflugum meistara.
- Geta fasað út úr veruleikanum að vild. Höggárásir gegn þeim eru skertar.
Blóðhjörtur
4 HP, 12 STY, 13 FIM, 5 VIL, horn (d8)
- Fæðast út frá ofbeldi af eigingjörnum eða sjálfselskum athöfnum.
- Drepa fórnarlömb sín til að nærast en verða aldrei saddir.
- Bannvænn skaði: Grefur horn sín inn í bráð og rífur út innyflin.
Boggi
3 HP, 4 STY, 17 FIM, 13 VIL
- Villtur, loðinn hrekkjalómur sem metur skínandi skartgripi meira en mynt.
- Boggar hafa raunnöfn sem lýsa eðli þeirra. Að vita þessi nöfn veitir stjórn yfir þeim.
- Galdrar: Bogginn getur lífgað við hluti, Sáð ruglingi, skapað galdra dulargervi, notað hugarflutning og fjarflutning.
Beinasmíði
8 HP, 3 brynja, 15 STY, 5 FIM, 3 VIL, skerptar hendur (d8+d8), hersveit
- Risavaxin, fjórarma skrímsli úr beinum og göldrum.
- Hugsunarlausir verðir sem eru reiðubúnir að ráðast á hvaða veru sem er, nema skapara sinn.
Bjarndrýsill
8 HP, 1 brynja, 14 STY, 12 FIM, 11 VIL, kylfa (d8)
- Stór drýsilkvikindi þakin feldi.
- Nota helst launsátur og brögð til að öðlast yfirburði.
- Stjórna oft hópum sambærilegra skepna (oftast drýsla).
Greftrandi hryllingur
6 HP, 1 brynja, 16 STY, 11 FIM, 4 VIL, bit (d10), sýrusprey (d8, sprengiskaði)
- Risavaxin skordýr með mörg fætur og glansandi svört augu. Lifa á mold, rótum og holdi.
- Grafa sig rétt undir yfirborðinu til að ráða að óvörum að bráð sinni.
- Banvænn skaði: Skotmark missir líkamshluta. Kastaðu 1d6. 1: Höfuð, 2-4: Fótleggur, 5-6: Handleggur.
Hellaspretta
2 HP, 6 STY, 12 FIM, 3 VIL, bit (d6)
- Risavaxnar, grasætu engisprettur sem lifa í hellum. Ónæmar fyrir flestum eitrum.
- Náttúrulegur litur þeirra gerir þeim kleift að renna saman við steininn. Gefa frá sér háværa skræki þegar þær finna fyrir ógn.
Kentár
6 HP, 1 brynja, 14 STY, 12 FIM, 14 VIL, spjót (d8) eða stuttbogi (d6)
- Verur með neðri líkama og fætur hests, en efri líkama manneskju.
- Finnast sjaldan einar, kjósa félagsskap eigin tegundar.
Steinhundar
12 HP, 2 brynja, 14 STY, 1 FIM, 8 VIL, bit (d10)
- Óhreyfanleg verkmenni, oft notaðar sem verndarar yfir miklum gröfum eða gripum.
- Ónæm fyrir venjulegum fortölum - en elska gott bein.
Skríðandi klifurjurt
8 HP, 10 STY, 12 FIM, 2 VIL, klifurgreinar (d4, sprengiskaði)
-
Lítur út eins og venjuleg klifurplanta. Ráðast á þá sem ganga framhjá og nota lík þeirra sem áburð.
-
Banvænn skaði: Skotmark er dregið upp í loftið þar sem það kafnar á fáeinum mínútum.
Grafarverðir
12 HP, 12 STY, 11 FIM, 14 VIL, óefnislegar klær (d8+d8)
- Upplífgaðir beinagrindur klæddar blaktandi kuflum. Augnatóftir þeirra loga rauðar á dáleiðandi hátt. Varðveita grafir og grafreiti, en ráðast ekki á nema þær séu ónáðaðar.
- Árásir með hefðbundnum vopnum eru skertar.
- Geta fjarflutt hvaða skotmark sem er innan sjónmáls í handahófskennt, nálægt herbergi.
Skógardís
4 HP, 8 STY, 12 FIM, 14 VIL, kræklóttir armar (d6)
- Feimnir, verndandi skógarandar sem birtast sem hrífandi mannsverur með græna húð.
- Geta ekki ferðast langt frá trénu sem þau eru bundin við. Deyja ef tréð er eyðilagt.
Ruglingur: Skotmarkið verður ringlað og reikar sífellt lengra frá tréi skógardísarinnar. VIL bjargarkast einu sinni á lotu til að losna.
Ettinn
10 HP, 16 STY, 8 FIM, 6 VIL, kylfa (d10)
- Tvíhöfða ættingjar risa. Kjósa helli og neðanjarðargreni.
- Ekki hægt að koma þeim að óvörum.
Hryllingsauga
15 HP, 9 STY, 8 FIM, 16 VIL, bit (d8)
- Fljótandi hnettir með stóran munn, risavaxið auga og nokkur lítil augu á löngum stiklum.
- Mjög greind, ákaflega gráðug og gjörsamlega geðveik.
- Geta kastað eftirfarandi göldrum að vild: Heillun, Fælni, Hugarflutning, Svefn, Víxla, Sýn. Galdrar sem beitt er gegn þeim krefst VIL bjargarkast til að takast.
Frostálfur
14 HP, 1 brynja, 8 STY, 13 FIM, 14 VIL, grýlukertisrýtingur (d6)
- Fagur, siðlaus og langlífur.
- Ónæmir fyrir flestum tegundum galdra.
- Geta kastað eftirfarandi göldrum að vild: Svefn, Fjarflutningur, Galdraskynjun.
Ufsagrýla
8 HP, 3 brynja, 14 STY, 4 FIM, 12 VIL, klær (d8+d8)
- Göldrum gæddar, hægfara styttur af vængjuðum skrímslum, oft notaðar sem verðir eða varðhundar.
- Ráfa um á næturnar en óttast daginn, þar sem sólarljósið frystir þær í stað.
- Ónæmar fyrir dáleiðslu og svefngöldrum.
Hlaupkennt slím
8 HP, 1 brynja, 15 STY, 6 FIM, 3 VIL, étandi snerting (d8)
- Stórar, formlausar klessur úr gegnsæju hlaupi. Veiða sér hugsunarlaust til matar í dýflissum og neðanjarðarhellum.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið er gleypt og missir d6 STY í hverri lotu þar til það er étið upp til agna.
Draugur
8 HP, 14 STY, 12 FIM, 15 VIL, lífskraftssuga (d6)
- Óefnislegar verur hinna órólegu dauðu, ónæmir fyrir öllu nema göldrum og helgum athöfnum.
- Bannvænn skaði: Skotmark verður kasta VIL varnarkast eða verða andsetinn og geta aðeins athafnað sig eftir vilja draugsins.
Náæta
6 HP, 14 STY, 8 FIM, 3 VIL, langar klær (d6+d6)
- Gráleit mannvera í rifnum fötum sem þráir aðeins hold lifandi vera.
- Banvænn skaði: Skotmark líður skort vegna drepsárs og deyr á d4 dögum nema prestur eða græðari meðhöndli það. Ef líkið er ekki brennt rís það síðar upp sem náæta.
Risasporðdreki
8 HP, 1 brynja, 11 STY, 12 FIM, 4 VIL, klær (d10+d10)
- Skorðdýr á stærð við hest sem finnast oft í þurru landi eða hellum.
- Bannvænn skaði: Eitur sporðsins leysir upp innri vefi skotmarks fyrir auka d8 STY skaða. STY tap er varanlegt.
Gnolli
6 HP, 1 brynja, 12 STY, 14 FIM, 8 VIL, spjót (d8)
- Grimmir, hýenulegir tvífætlingar, skapaðir í fornum galdratilraunum.
- Banvænir stríðsmenn sem ráðast í hjörð (sem hersveit) eða upp á eigin spýtu.
Drýsill
4 HP, 8 STY, 12 FIM, 8 VIL, rýtingur (d6) eða steinslöngva (d6)
- Smávaxnar og ófrýnilegar verur með húð í jarðlitum: grænum, brúnum og gráum.
- Forðast bardaga og ráðast aðeins til atlögu ef þeir hafa yfirburði, nota skyndiárásir og flótta.
- Stundum nota þeir stórúlfa sem reiðskjóta.
Grænn drekinn
12 HP, 2 brynja, 14 STY, 15 FIM, 18 VIL, bit (d12), aðskilnaður
- Skógardrekar þaktir háum, grænum hreisturflögum. Safna gríðarlegum fjársjóðum.
- Nota vitsmuni og slægð til að ráðskast með veikari einstaklinga.
- Klórgas: Allir nálægt verða að kasta FIM varnarkast til að forðast áhrif þess, annars tapa þeir 1d4 STY og líða skort.
Griffill
7 HP, 14 STY, 15 FIM, 12 VIL, klær (d6+d6), hersveit
- Gráðugar blendingsverur með höfuð og vængi arnar en neðri líkama ljóns.
- Hægt að temja og nota sem reiðskjóta ef þær eru teknar ungar og rétt þjálfaðar.
- Ráðast með ógnarhraða, grípa bráð sína úr lofti.
- Bannvænn skaði: Rífur hold og bein úr fórnarlambi með beittum goggi.
Grábjörn
6 HP, 15 STY, 13 FIM, 5 VIL, klær (d8+d8)
- Rauðbrúnir birnir sem finnast gjarnan í fjöllum, skógum og graslendi.
- Kjósa að éta fisk og kjöt, og ráðast á hinn óheppna sem verður á vegi þeirra.
- Banvænn skaði: Bítur fórnarlambið og veldur auka d6 STY skaða. Því blæðir mjög hratt út.
Refsinorn
8 HP, 7 STY, 12 FIM, 14 VIL, klær (d6+d6)
- Viðurstyggilegar verur með líkama risavaxins arnar og mannlegt höfuð.
- Hreyfingar þeirra og flug eru klaufaleg vegna ójafnvægis í líkamsbyggingu. Treysta á heilluð fórnarlömb til að framkvæma eitthvað af viti.
- Söngur: Allir nálægt þurfa að standast VIL varnarkast eða verða heillaðir af rödd hennar, elta refsinornina og verja hana fyrir hættu.
Helhundur
8 HP, 12 STY, 15 FIM, 9 VIL, bit (d8), eldspúandi andardráttur (d6, sprengiskaði)
- Skelfilegir, vitiborinn hundar sem búa nærri eldfjöllum.
- Ónæmir fyrir eldi og hitaskemmdum. Nógu heitir til að bræða járn með biti einu saman.
Stórdrýsill
6 HP, 2 brynja, 14 STY, 8 FIM, 11 VIL, gaddakylfa (d8)
- Stórir og kraftmiklir ættingjar drýsla. Dvelja í neðanjarðarvirkjum þar til þeir eru kallaðir í stríð.
- Standa sjálfkrafa mórals varnarkast ef herforingi er til staðar.
- Þjálfaðir í að berjast saman. Skaði er elfdur ef bandamaður er einnig í bardaga við sama óvin.
Hettuklæddir menn
12 HP, 9 STY, 12 FIM, 14 VIL, leystafur (d8)
- Verndarar skógarins; sértrúarsöfnuður sem sækir mátt sinn frá leylínum, rúnasteinum og öðru eins.
- Banvænn skaði: Sogar hluta af sál fórnarlambsins (1d4 VIL skaði).
- Ber tvær af eftrifarandi galdrabókum ( Heillun, Dáleiðsla, Ýta/Draga, Skjöldur)
Hýdra
12 HP, 2 brynja, 13 STY, 7 FIM, 12 VIL, bit (d12, sprengiskaði), hersveit
- Stórar eðlur með níu slönguhöfuð. Mjög erfiðar að forðast þegar þær hafa séð bráð sína.
- Þegar þær taka banvænans skaða, missir hýdran eitt höfuð. Hún heldur áfram að berjast þar til ekkert höfuð er eftir.
Ósýnilegur eltihrellir
8 HP, 12 STY, 12 FIM, 15 VIL, hnefahögg (d4+d4)
- Vitibornar verur mótaðar inn í veruleikann af öflugum galdramanni. Algjörlega ósýnilegar og hljóðlausar.
- Árásir þeirra skaða STY beint (að frádreginni brynju).
Drápsbýflugur
6 HP, 6 STY, 14 FIM, 8 VIL, stunga (d6), hersveit
- Risavaxnar býflugur sem byggja neðanjarðar. Mjög árásargjarnar og ráðast á allt sem nálgast.
- Búa til sérstakt hunang sem læknar 1d6 STY. 3 skammtar.
- Þegar flugurnar valda STY skaða, festast broddar þeirra í skotmarkinu, valda d4 skaða hverja umferð þar til þeir eru fjarlægðir.
Kóbolti
3 HP, 8 STY, 13 FIM, 4 VIL, bit (d6), spjót (d8)
- Hárlausar mannverur með hundaeinkenni og hreistraða húð. Sjá fullkomlega í myrkri en skaðast af beinu sólarljósi.
- Nota gildrur og launsátur til að sigra andstæðinga. Oft þjónar öflugri verum.
Lamía
6 HP, 11 STY, 12 FIM, 16 VIL, bit (d8)
- Skepnur sem nærast á lífsorku annarra, tæla fórnarlömb sín með óvenjumiklum persónutöfrum og greind. Efri líkami er mannlegur, neðri hlutinn sambland af dýrategundum.
- Náttúrulega göldróttar. Geta skapað sjónhverfingar, heillað verur og dulbúið sig að vild.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið missir d6 VIL þegar lífsorka þess er soguð í burtu. Það verður þá bundið vilja lamíunni og hlýðir skipunum hennar meðan hún er nærri.
Návarður
14 HP, 1 brynja, 8 STY, 8 FIM, 18 VIL, sálarrýtingur (d8)
- Öflugir galdramenn sem færðu hæstu fórn fyrir ódauðleika: sitt eigið líf. Máttaþorsti þeirra er nú óseðjandi.
- Viðhalda ódauðleika með því að binda sig við jarðneskan grip, venjulega verndaðan af að minnsta kosti d6 öðrum lifandi dauðum þjónum.
- Bera allt að sex af eftirfarandi galdrabókum: uppvakning hluts, töfraauga, gera heyrarlausa, sundurlimun, frumaflsveggur, æði, hlið, svif, hatur, auðkenna eiganda, bank, friða, upprisa, framkalla anda, skjöldur, svefn, reykform, hugarflutningur, hugarsamskipti, fjarflutningur, sýn, galdramerki.
Sporðljón
6 HP, 15 STY, 14 FIM, 12 VIL, klær (d6+d6), halaspjót (d8)
- Grimm skrímsli með mannsandlit, líkama ljóns, vængi leðurblöku og sporðdrekahala. Búa í fjöllum, yfirgefnum kastölum og gleymdum dýflissum.
- Sporðgaddar þeirra virka eins og kastspjót og vaxa aftur eftir nokkra daga. Einn gaddur er 150 gp virði fyrir safnara.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið líður skort þar til það fær góða nætursvefn. Þar til þá verður það dónalegt, eigingjarnt og grimmt (eða enn þá meira, ef það var það nú þegar).
Hermir
9 HP, 2 bynja, 13 STY, 6 FIM, 12 VIL, bit (d8)
- Illgjörn hambreytandi skrímsli sem taka á sig mynd lífvana hluta sem finnast oft í dýflissum.
- Hreyfa sig ekki meðan þau eru í dulargervi og koma þannig fórnarlömbum sínum á óvart.
- Munnvatn hermisins er afar klístrað og erfitt að fjarlægja. Alkemistar greiða allt að 150 gp fyrir minnstu flösku af því.
Hugfláir (Mind Lasher)
12 HP, 8 STY, 12 FIM, 18 VIL, fálmarar (d6, sprengiskaði)
- Mannverur með fjólubláa húð og höfuði í kolkrabbalíki. Búa djúpt neðanjarðar eða í geimskipum. Nærast á heila annarra mannvera og gleypa minningar og lífsanda þeirra. Bráðgreindir en óumræðilega illir.
- Hugarsprengja: Nálæg skotmörk verða að standast VIL varnarkast eða missa 1d4 VIL og verða lamað.
- Banvænn skaði: Fálmari rífur heila fórnarlambsins úr hauskúpunni.
Minótár
12 HP, 1 brynja, 16 STY, 12 FIM, 8 VIL, tveggja handa öxi (d10), áhlaup (d12)
- Stór mannverur (venjulega karlkyns) með höfuð nauts. Búa í völundarhúsum og dýflissum.
- Ótrúlega góðir að rekja spor, með frábært lyktarskyn og fundvísir.
Múmía
6 HP, 12 STY, 8 FIM, 6 VIL, drepandi snerting (d10)
- Uppvakningar vafðir í grafarklæði. Finnast í pýramídum, rústum, hofum og gröfum.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið sýkist af múmíurotnun og getur ekki endurheimt STY fyrr en það er læknað af sérfræðingi. Skotmarkið fær einnig skort.
Mannnaðra
6 HP, 1 brynja, 14 STY, 12 FIM, 14 VIL, sverð (d6), bit (d10)
- Mannverur með neðri búk, hala og háls orms. Búa í heitum frumskógum og týndum hofum.c
- Nota slægð og dáleiðslu til að fanga aðrar verur og gera þær að þrælum.
- Augnaráð: Skotmark sem horfir beint á mannnöðru verður dáleitt og fellur undir vilja hennar. Fórnarlömb hennar geta ekki verið neydd til ofbeldis.
Næturköttur
6 HP, 9 STY, 14 FIM, 5 VIL, klær (d6+d6)
- Greind næturdýr sem búa í skógum og fenjum. Veiða í hópum.
- Bannvænn Skaði: Næturkötturinn byrjar að éta skotmarkið (d4 STY skaði) meðan það er enn á lífi.
Næturnorn
8 HP, 9 STY, 11 FIM, 16 VIL, klær (d8+d8)
- Hræðilegar gamlar konur sem búa í dauðum skógum, fenjum og mýrum.
- Bera þrjár af eftirfarandi galdrabókum: galdraauga, dulargervi, þokuský, auðkenna eiganda, reykform.
Martröð
8 HP, 15 STY, 12 FIM, 8 VIL, logandi hófar (d8+d8)
- Gáfuð, djöfullegir hestar með augu eins og glóandi kol, reykspúandi nasir og logandi hófa.
- Árásir gegn martröð eru skertar vegna þykks reykjarmakkar sem hún framleiðir.
Tröllkarl
6 HP, 1 brynja, 16 STY, 8 FIM, 6 VIL, kylfa (d10)
- Risavaxnir og gráðugir fautar sem stíga ekki í vitið.
- Heillast auðveldlega af glitrandi hlutum og safna gull- og fjársjóðspokum í flygsnum sínum.
Uglubjörn
9 HP, 16 STY, 12 FIM, 5 VIL, goggur (d10), klær (d8+d8)
- Rándýr lík björnum með andlit uglu. Finnast í þéttum skógum. Orðrómur er um að þau séu afleiðing töframistaka.
- Bannvænn Skaði: Bútar af brynju fórnarlambsins eru rifnir í sundur og eyðilagðir.
Fönix
4 HP, 15 STY, 13 FIM, 12 VIL, klær (d10+d10)
- Greindar verur sem líkjas haukum úr hreinum loga, finnast í einangruðum eyðimerkum og háum fjöllum.
- Ef þær deyja, springa þær í eldhnött. Endurfæðast 1d3 dögum síðar úr öskunni.
- Fjaðrir þeirra eru mjög eftirsóttar vegna lækningaeiginleika sinna.
Smáfólk
3 HP, 3 STY, 15 FIM, 13 VIL
- Smávaxnar mannverur með skordýravængi. Náttúrulega ósýnilegar.
- Geta kastað göldrunum svefn og grímuball að vild.
Purpura ormur
18 HP, 1 brynja, 18 STY, 8 FIM, 6 VIL, bit (d12), hersveit
- Risavaxnir ormar sem búa í risastórum holum djúpt neðanjarðar og koma aðeins á yfirborðið til að veiða. Finnast í heitum eyðimörkum og túndrum.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið er gleypt og tekur d8 STY skaða frá sýru í maga ormsins.
Rauðhattur
6 HP, 6 STY, 12 FIM, 8 VIL, tvær sigðir (d6+d6)
- Fæðast úr blóði sem hefur rotnað í álfaheimi. Hattar þeirra eru djúprauðir af blóðinu sem þeir baða sig í.
- Hunsa þá sem hafa lítið að lifa fyrir, þar sem morð þeirra veitir enga ánægju.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið er sundurrifið og blóð þess sprautast um allt, endurheimtir STY sem rauðhatturinn hafði tapað.
Skriðdýramaður
5 HP, 1 Bbynja, 14 STY, 12 FIM, 5 VIL, beinspjót (d8)
- Froskdýra mannverur sem lifa í stórum ættbálkum nálægt fenjum og frumskógum.
- Smíða vopn og brynjur úr beinum bráða sinna. Borða hvað sem er, þar á meðal menn.
Rótadrýslinn
4 HP, 8 STY, 14 FIM, 8 VIL, spjót (d6)
- Forðast bardaga nema þeir hafi yfirburði (t.d. fleiri í hóp).
- Verja stolnar eigur sínar til dauða.
- Þrá galdrabækur og eru tilbúnir að eiga viðskipti með þær.
Rótarvita
8 HP, 9 STY, 16 FIM, 14 VIL, rótarfingur (d6)
- Frábærir jarðgangagrafarar sem fela sig neðanjarðar nálægt vatni. Nota smáar rætur sem tálbeitu.
- Ofanjarðar virðast þeir rétt mannlegar verur með andlit sem líkist rotnuðu tréstubbi.
- Skipta sjaldgæfum steinum fyrir „ferskt lík“ af hvaða gerð sem er.
Ryðskrímsli (Rust Monster)
5 HP, 16 STY, 13 FIM, 5 VIL, bit (d6)
- Beltisdýraleg kvikindi með kylfulaga hala og langa skynþræði. Nærast á járni og ryðguðum málmum.
- Allir venjulegir málmar sem skynþræðir þeirra snerta verða samstundis að ryði. Geta þefað uppi málm langar vegalengdir.
- Bannvænn skaði: Málmbrynja ryðgar og verður ónothæf.
Hafnorn
6 HP, 11 STY, 15 FIM, 14 VIL, langar klær (d6+d6)
- Draugalegar nornir með græna húð sem búa í sjávarþangskógum og grunnsævi.
- Ónæmar fyrir töfrum úr galdrabókum.
- Hræðilegt augnaráð: Skotmark fyllist af skelfingu (HP fellur í 0). VIL varnarkast í hverri umferð til að brjótast undan álögunum.
Skuggi
14 HP, 1 STY, 18 FIM, 14 VIL, tæmandi snerting (d6, hunsar brynju)
- Óefnisleg skrímsli sem líta út eins og lifandi skuggar. Ónæmir fyrir venjulegum árásum, svefni eða hugarstjórn.
- Bannvænn skaði: Skotmark missir d4 STY. Ef STY fellur í 0, verður það einnig að skugga.
Hrasandi haugur
9 HP, 15 STY, 6 FIM, 8 VIL, armar (d8+d8), hersveit
- Hávaxnar mannverur gerðar úr slímkenndu gróðri. Búa í dimmum fenjum og rökum neðanjarðargöngum.
- Bannvænn skaði: Skotmarkið er gleypt heilt og dregið á brott.
Beinagrind
5 HP, 1 brynja, 8 STY, 13 FIM, 0 VIL, ryðgað sverð (d6) eða bogi (d6)
- Oftast í þjónustu meistara eða návalds, venjulega 3 í hóp eða fleiri.
- Klæðast því sem var á þeim við dauða þeirra.
- Ef beinagrind er drepin og bein hennar eru ekki dreifð, endurmyndast hún.
Himnarisi
12 HP, 1 brynja, 16 STY, 12 FIM, 14 VIL, kylfa (d10), hersveit
- Háreistir risar með hvíta húð sem lifa í kastölum hátt uppi í fjöllum.
- Skotárásir gegn þeim eru skertar vegna kröfugra vinda í kringum þá.
Sfinx
18 HP, 12 STY, 13 FIM, 18 VIL, klær (d8+d8, sprengjuskaði), goggur (d10)
- Goðsagnaverur með efri líkama og höfuð manneskju, vængi arnar og líkama ljóns. Ónæmir fyrir öllum töfrum.
- Leggja fram gátur fyrir þá sem mæta þeim. Ef svarað er rangt, er refsingin oft dauði. Þeir vita nánast allt sem vert er að vita.
- Öskur: Allir sem heyra verða að standast VIL varnarkast eða flýja í skelfingu.
Stormrisi
18 HP, 2 brynja, 18 STY, 16 FIM, 18 VIL, stórsverð (d12), hersveit
- Risavaxnar mannverur með bronslitaða húð og ljóst hár. Lifa á hæstu fjallstindum og grýttustu strandlínum.
- Skaðast ekki af eldingum, geta kallað fram stormský að vild. Geta flogið með vindinn sem vagn sinn.
- Þrumuhögg: Veldur 4 STY skaða gegn einu skotmarki. Skotmörk í málmbrynjum taka tvöfaldan skaða.
Svínvera
9 HP, 16 STY, 8 FIM, 13 VIL, skögultennur (d6+d6)
- Feitar mannverur sem breytast í gríðarstór svínslíki til að gæða sér á mannakjöti.
- Veiða helst í einangruðum byggðum nálægt skóglendi og votlendi. Geta aðeins skipt um ham á næturnar.
- Heillun: Skotmark hlýðir öllum skipunum svínverunnar þar til hún er drepin. VIL varnarkast einu sinni á lotu til að losna.
Títan
18 HP, 3 brynja, 16 STY, 15 FIM, 18 VIL, eldingarsverð (d12), hersveit
- Goðsagnakenndar, risavaxnar mannverur með stórfenglega fegurð og kröftuga líkama. Góðhjartaðir en oft með stórmennskubrjálæði.
- Eru upprunnir frá öðrum veraldarplönun, en stundum reisa þeir vígi í hinum dauðlega heimi.
- Geta svifið, skipt um ham og mótað frumefni að vild.
Tréverja
10 HP, 3 brynja, 15 STY, 3 FIM, 12 VIL, rætur (d8+d8, sprengiskaði)
- Vitiborin, tvífætt tré með mannlegt andlit í stofninum. Búa í dýpstu skógum.
- Tala hægt og ígrundað, með djúpri rödd. Eru tímalausar og lifa í þúsundir ára.
Tríton
6 HP, 12 STY, 15 FIM, 12 VIL, þríforkur (d8)
- Vatnsveljandi mannverur með silfurhúð, blágrænt hár og hreistraðar fætur sem enda í uggum. Búa í hlýjum sjó nálægt landi.
- Kastalar þeirra eru meitlaðir úr sjávarbergi og kóral. Þeir stjórna stórum fiskatorfum bæði til varnar og fæðuöflunar.
Tröll
14 HP, 1 brynja, 14 STY, 12 FIM, 4 VIL, bit (d10), klær (d8+d8)
- Risavaxnar, vörtóttar mannverur úr holdi og berki. Lifna helst neðanjarðar, í dimmum skógum eða í rústum fórnarlamba sinna. Kjötætur.
- Þegar þau taka banvænan skaða, berjast þau áfram þrátt fyrir tapaða útlimi. Þau deyja ekki nema STY falli í 0. Ef höfuð þeirra er ekki brennt með sýru, eldi eða göldrum, endurmyndast þau á 1d4 dögum.
Einhyrningur
6 HP, 14 STY, 12 FIM, 14 VIL, horn (d10, hunsar brynju)
- Töfrandi hestar með eitt langt horn á enni. Viðkvæmir en stoltnir og ósveigjanlegir, eru taldir guðlegar verur.
- Hár þeirra er afar verðmætt vegna lækningaeiginleika sinna.
Vampíra
12 HP, 1 brynja, 14 STY, 12 FIM, 16 VIL, bit (d10)
- Heillandi, ódauðlegar verur sem drekka blóð dauðlegra. Eru á ferli á næturnar og sofa í kistu á daginn. Geta breytt sér í leðurblöku að vild.
- Endurmyndun: Vampíra endurheimtir 6 HP með því að bíta skotmark sem hefur blóð. Ef hún deyr breytist hún í gasský og flýr til kistu sinnar, þar sem hún endurmyndast við næstu næturkomu. Til að drepa hana verður að brenna hana í sólarljósi eða eyðileggja kistuna hennar.
- Banvænn skaði: Vampíran sýgur lífsanda skotmarks og veldur d12 VIL-skaða. Ef VIL fellur í 0, deyr það og verður þræll vampírunnar.
Naðra
3 HP, 5 STY, 12 FIM, 3 VIL, bit (d6)
- Eiturormar sem finnast oft í hellum, gryfjum og öðrum dimmum stöðum. Hægt er að búa til mótefni úr eiturpokum þeirra.
- Nota hita og lykt til að elta fórnarlömb sín.
- Banvænn skaði: Skotmarkið verður eitrað og deyr á 1d12 klukkustundum án lækningar.
Skuggahlébarði
8 HP, 13 STY, 16 FIM, 12 VIL, armar (d8+d8, sprengiskaði), bit (d10)
- Hræðileg rándýr sem líkjast hlébörðum með langa, beitta arma á baki.
- Töfrar bíta illa gegn þeim. Galdramaður verður að standast VIL varnarkast til að galdur virki.
- Getur fært sig skyndilega stuttar vegalengdir. Hata Blikkhunda.
Vígasniglar
4 HP, 2 brynja, 14 STY, 6 FIM, 3 VIL, fálmarar (d8+d8)
- Risavaxnir sniglar með þykka skel og þunga, kylfulega fálmara.
- Sumir hafa litskrúðuga skel sem getur endurkastað töfrum.
Varúlfur
8 HP, 15 STY, 14 FIM, 6 VIL, klær (d6+d6), bit (d8)
- Ógnvekjandi hamskiptar sem breytast í úlfa að vild.
- Venjulegar árásir á þá eru skertar, en árásir með silfurvopnum eru elfdar.
- Banvænn skaði: Skotmark sýkist af varúlfasýki og breytist í varúlf við næstu fullu tungl.
Vígandi
12 LÍF, 3 brynja, 16 STY, 8 FIM, 12 VIL, langsverð (d10)
- Skelfilegir, fallnir hermenn, reistir úr dauðanum í illum tilgangi. Oft á hryllilegum fákum og leiða lægri uppvakninga til bardaga.
- Banvænn skaði Ef misheppnast, er all tap á STY varanlegt.
Mýraglampi (Will-o-Wisp)
3 HP, 6 STY, 17 FIM, 12 VIL
- Næturandar úr köldum loga, finnast oft í þéttum skógum, mýrum og fenjum.
- Þekktir fyrir að villa um fyrir ferðalöngum – til dauða, eða heim aftur.
Úlfur
6 HP, 12 STY, 14 FIM, 8 VIL, bit (d8)
- Stórir hunddýr sem lifa aðallega í skógum eða túndru.
- Hægt er að temja þá með fyrirhöfn ef þeir eru fangaðir ungir.
Skógartröll
10 HP, 15 STY, 12 FIM, 7 VIL, bit (d8), kylfa (d10)
- Stórar mannsverur með langa útlimi úr berki eða rótum. Þau búa í skógum og eiga djúpa tengingu við gróðurinn í kring.
- Ef þau deyja, byrja þau smám saman að gróa aftur til lífs nema líkið sé fjarlægt úr skóginum eða brennt.
- Banvænn skaði: Mosi og greinar byrja að spretta úr sárum fórnarlambsins.
Drekatittlingur
11 HP, 15 STY 14 FIM, 13 VIL, broddur (d10)
- Stór, vitiborin, vængjuð skriðdýr. Lifa víða en kjósa þurrar klettahæðir.
- Forðast aðra skepnur og elta bráð sína hljóðlaust úr fjarlægð.
- Banvænn skaði: Fórnarlambið er stungið og haldið fast niðri. Drekatittlingurinn bítur svo höfuðið af.
Vatnsfrumaflsvera
14 HP, 15 STY, 16 FIM, 4 VIL, sprey (d8)
- Sjaldséðir andar vatns, búa í vötnum, ám og sjó.
- Venjulegar árásir gegn þeim eru skertar.
- Banvænn skaði: Skotmarkið er umlukið vatni og drukknar á þremur lotum.
Uppvakningur
2 HP, 12 STY, 6 FIM, 3 VIL, riflaðar klær (d6)
- Endurlífgaðuð lík, vakin upp með nágöldrum eða bölvun. Ónæmar fyrir hugarstjórn.
- Ef ekki er algjörlega eytt (með eldi, sundrun osfrv.), rís uppvakningurinn aftur eftir fáeinar mínútur.
- Bannvænn skaði: Skotmark sýkist og líður skort. Án hjálpar sérfræðings eða heilarar verður það uppvakningur eftir 1d4 daga.