Vasaþjófur
You live in the grey space between those who have power and those who don’t. You find opportunity where others see only chaos. With nimble fingers, you unburden both the richest merchant and the lowliest guard.
Nöfn
Arlo, Lyra, Eamon, Salina, Elara, Freya, Bull, Sparrow, Ivy, Silas
Byrjunarbúnaður
- 3d6 gullpeningar
- Vistir (3 skammtar)
- Kyndill (3 skammtar)
- Tveir rýtingar (d6+d6, fyrirferðamiklir)
- Stungin leðurklæði (1 brynja)
- Þjófalyklar
- Svört klæði (léleg)
Hvert var síðasta stóra verkefnið þitt? Kastaðu 1d6:
1 | Sumardvalarstaður aðalsmanns. Þar var gnægð af fínu víni (+20gp) en lítið annað. Taktu girðingaklippur. |
2 | Banki. (Þú varst gripinn.) Þú berð brennimerki sem aðeins sést í eldsbjarma, og hver sem sér það getur krafist þess að þú kaupir þeim bjór. Þú ert með inndraganleg vír. |
3 | Vöruhús gildis. Þú ert með stiga (fyrirferðamikill, 10 fet) og blindunarduft (1 skammtur). |
4 | Lánadrottinn. Einhver var á undan þér en skildi eftir rullu með töfraaauga (léleg). Töfraauga: Þú getur séð í gegnum fljótandi töfraauga sem flýgur um eftir skipun þinni. |
5 | Skrifstofa lögregluþjóns. Þér tókst að sleppa en skildir félaga eftir. Þú ert með sterkt silkireipi (30 fet) og slæma tilfinningu. |
6 | Háskóli. Þú varst séður en ekki eltur. Þú veist enn ekki af hverju. Taktu reykköggla (3 skammtar). |
Hvað hjálpar þér að stela? Kastaðu 1d6:
1 | Kattarhringur | 2 hleðslur. Klifraðu upp veggi og lentu mjúklega. Endurhlaða: Settu hringinn á rófu flækingakattar. |
2 | Gyllifingur | 1 hleðsla. Fingurbjörg sem hermir eftir hvaða venjulegum lykli sem er. Endurhlaða: Pakkaðu því saman með að minnsta kosti 100gp yfir nótt. |
3 | Gæjugler | 3 skammtar. Eingler sem gerir þér kleift að sjá í gegnum veggi eða aðrar fyrirstöður. Brotnar eftir síðustu notkun. |
4 | Sykurflauta | 1 hleðsla. Þeir sem hlusta heyra mjúka, kunnuglega rödd í fjarska sem þeir geta ekki staðist að elta. Endurhlaða: Glataðu dýrmætri minningu. (Lýstu henni.) |
5 | Flækingshula | 1 hleðsla. Þegar þú klæðist henni blandast þú fullkomlega inn í mannfjöldann og lítur út eins og fátækur flækingur. Endurhlaða: Gefðu allann ágóða dagsins til fátækra. (Léleg) |
6 | Afturhvarfskúla | 1 skammtur. Þegar hún er snúin fer tíminn 30 sekúndur aftur á bak. Allir muna samt hvað gerðist. |