Gullsmiður
Þú ert listamaður hins dulræna, völundur óséðra afla. Í deiglu verkstæði þíns eru lögmál heimsins mótuð að þörfum þínum.
Nöfn
Hestia, Basil, Rune, Prism, Ember, Quintess, Aludel, Mordant, Salaman, Jazia
Byrjunarbúnaður
- 3d6 gullpeningar
- Vistir (3 skammtar)
- Lampi
- Olíukanna (6 skammtar)
- Nálahnífur (d6)
- Hlífðarhanskar (lélegir)
Hvað fór hryllilega úrskeiðis? Kastaður 1d6:
1 | Það varð sprenging og þú misstir lyktarskynið. Næstum því: þú getur þefað uppi gull eins og svín finnur jarðsveppi. Þú er með dós af neftóbaki (6 skammtar) til að draga úr áhrifunum. Notaðu það daglega eða líða skort. |
2 | Þú leystir upp ástkært gæludýr. Nú fylgir það þér, ósýnilegt en alltaf til staðar. Það getur ekki haft áhrif á efnisheiminn, en þú getur deilt skynjun þess. (Bættu við þreytu í hvert skipti.) Það fylgir einföldum skipunum. |
3 | Þú verðst fyrir áhrinfum langvirks sannleikslyfs og áhrif þess hafa ekki dvínað. Þetta ástand hefur sína kosti: þú getur ekki endurtekið lygar sem þú hefur heyrt. |
4 | Þú varst laginn við að búa til falsgull sem var næstum eins gott. Að lokum komst upp um pretti þína og þú þurftir að flýja í skyndi. Þú ert með þunga málmstöng og gullduft (3 skammta). |
5 | Alkemíska uppskriftin þín virkaði en keppinautur þinn stal teikningunni áður en kröfur þínar gátu verið sannaðar. Þú ert með frumgerð af frethólk (d12, sprengiskaði, fyrirferðamikill) sem tekur eina lotu að hlaða og býr yfir hefndarþorsta. |
6 | Þú varst að athlægi fyrir að uppgötva hvernig á að breyta gulli í blý. Þú ert með flösku að alhliðaleysi (2 skammtar) sem leysir allt sem það snertir upp í grunnþætti sína. |
Hvaða undursamlega efnifræðisköpun er afrakstur hugvits þíns? Kastaður 1d6:
1 | Eldfimt hlaup | Klístraður grænn vökvi sem kviknar í þegar hann kemst í snertingu við loft. Brennur í 8 klukkustundir og ekki hægt að slökkva það. |
2 | Sprengihnöttur | Járnkúla á stærð við höfuð, fyllt með sprengiefni sem springur við högg. d12, sprengiskaði, fyrirferðamikið. |
3 | Lífsvatn | Hreinsar hvaða vökva sem er og breytir honum í hreint vant. Að drekka það endurheimtir 1d6 STY. 1 skammtur. |
4 | Hermisteinn | Tekur upp stutta setningu sem hægt er að endurspila síðar. |
5 | Neistaduft | Kviknar hratt og auðveldlega í því. Gagnlegt til að kveikja eld eða sem íkveikjuefni. 3 skammtar. |
6 | Smámenni | Smávaxin leirafsteypa af sjálfum þér sem fylgir öllum skipunum þínum. Það hatar að vera bundinn í þjónustu þinni og kvartar við hvert tækifæri. Allur skaði sem það verður fyrir skaðar þig líka. 3 HP, 4 STY, 13 FIM, 5 VIL. |